Theresa May, forsætisráðherra Breta hefur tiulkynnt að 23 rússneskum stjórnarerindrekum verði vísað úr landi í kjölfar taugaeiturstilræðisins við Skripal-feðginin í Salisbury um þar síðustu helgi. Breskir ráðherrar ætla ekki að sækja HM í Rússlandi í sumar og ekki heldur neinn úr bresku konungsfjölskyldunni.
Staðan í samskiptum þjóðanna hefur ekki verið verri síðan í á dögum kalda stríðsins.
Í yfirlýsingu sinni í þinginu í dag fullyrti May að Rússar bæru ábyrgð á árásinni. Hún sagðist hafa rætt stöðuna í kjölfarið við leiðtoga Bandaríkjanna, Frakka og Þjóðverja. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman til fundar í kvöld og þar verður árásin rædd.
Í ræðu sinni í þinginu í dag ræddi May um umsvif rússneskra erindreka og auðkýfinga í Bretlandi og tilkynnti um herta löggjöf um eftirlit með fjármálagerningum útlendinga.
Rússa segja viðbrögð Breta lýsa skammsýni og kalla þau fjandsamleg, óréttlætanleg og ólíðandi.