Bretar og kanar 54% ferðamanna

Um 77.500 erlendir ferðamenn fóru frá landinu í janúar síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 14.800 fleiri en í janúar á síðasta ári.

Aukningin nemur 23,6% milli ára. Ferðamönnum hefur fjölgað verulega í janúar á síðustu árum og hafa aldrei verið fleiri en í ár. Meira en fjórfalt fleiri ferðamenn komu í janúarmánuði 2016 en í janúar árið 2010.

Um 78% ferðamanna í janúar árið 2016 voru af tíu þjóðernum. Bretar voru fjölmennastir eða 35,5% af heildarfjölda en næstir komu Bandaríkjamenn (18,6%). Þar á eftir fylgdu Kínverjar (4,3%), Þjóðverjar (4,2%), Frakkar (3,2%), Danir (2,7%), Norðmenn (2,5%), Japanir (2,3%), Svíar (2,2%) og Kanadamenn (2,0%).

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bretum, Bandaríkjamönnum og Kínverjum mest milli ára en 5.835 fleiri Bretar komu í janúar í ár en í sama mánuði í fyrra, 5.051 fleiri Bandaríkjamenn og 1.173 fleiri Kínverjar. Þessar þrjár þjóðir báru uppi aukninguna í janúar milli ára eða 81,5% af heildaraukningu. Ferðamönnum fækkaði hins vegar frá nokkrum þjóðum, m.a. Svíþjóð, Danmörku, Frakklandi og Japan. 

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í janúarmánuði má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010. Þannig hefur fjöldi ferðamanna frá Bretlandi og Norður Ameríku meira en sexfaldast, fjöldi ferðamanna frá Mið- og S-Evrópu nærri þrefaldast og ferðamönnum frá löndum sem lenda í hópnum annað meira en fjórfaldast. Ferðamönnum frá Norðurlöndunum hefur hins vegar fjölgað í minna mæli. 

Samsetning ferðamanna hefur breyst mikið frá árinu 2010 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í janúar síðastliðnum voru Bretar ríflega þriðjungur ferðamanna en ríflega fimmtungur árið 2010. Norðurlandabúar voru fjórðungur ferðamanna árið 2010 en árið 2016 var hlutfall þeirra komið í 8%. Hlutfall N-Ameríkana í janúar er mun hærra í ár en fyrri ár en hlutfall Mið- og S-Evrópubúa hins vegar lægra en árin á undan. Hlutfall ferðamanna í janúar frá öðrum mörkuðum hefur hin síðari ár hins vegar verið á svipuðu róli.

Um 30 þúsund Íslendingar fóru utan í janúar síðastliðnum eða 2.700 fleiri en árið 2015. Um er að ræða 11,1% fleiri brottfarir en í janúar 2015.