Bretar geta ákveðið að hætta við brexit einhliða

Samkvæmt úrskurði Evrópudómstólsins geta aðildarríki hætt við ákvörðun sína um að yfirgefa Evrópusambandið án samþykkis annarra aðildarríkja. Það þýðir að breska þingið getur ákveðið að hætta við Brexit.

Bretar geta hætt við að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið án þess að fá sam­þykki annarra aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins sam­kvæmt úrskurði Evr­ópu­dóm­stóls­ins sem birtur var í morg­un. Frá þessu er greint á vef Guar­di­an.

Í úrskurð­inum kemur fram að hvert aðild­ar­ríki getur aft­ur­kallað 50. grein Lissa­bonsátt­mál­ans án sam­þykkis frá öðrum aðild­ar­ríkj­um. Dóm­stól­inn hafnaði þeim rök­um, sem sett höfðu verið fram af bresku rík­is­stjórn­inni og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, að til þess að aft­ur­kalla útgöngu þá þyrftu öll aðild­ar­ríkin að sam­þykkja það fyrst. Í sátt­mál­anum snýr 50. ­greinin að því tveggja ára ferli sem hefst þegar aðild­ar­ríkin ákveða að yfir­gefa sam­band­ið.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-12-10-bretar-geta-einhlida-akvedid-ad-haetta-vid-brexit/