Bretar ganga kannski aldrei úr esb

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að hugsanlega muni Bretar aldrei ganga úr Evrópusambandinu, fari svo að þingmenn breska þingsins hafni útgöngusamningnum sem May hefur gert við Evrópusambandið. Þetta hafði hún á orði á pólitískum fundi með verkamönnum í Grimsby. RÚV.is greinir frá.

Á fundinum skoraði May á ráðamenn ESB að gera eina tilraun til viðbótar til að breyta útgöngusamningnum, svo að meirihluti þingmanna gætu samþykkt hann. Eftir að samningur hennar var kolfelldur í janúar í neðri deild þingsins hefur May reynt að ná fram breytingum á honum sem þingið geti sætt sig við. Þær tilraunir hafa engan árangur borið.

Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu, Brexit, fer að óbreyttu fram eftir þrjár vikur, þann 29. mars.

Hammond býst frekar við frestun

Philip Hammond, fjármálaráðherra Bretlands, tekur ekki jafn djúpt í árinni og May en telur að útgöngunni verði frestað ef samningurinn verður felldur af þinginu. Þetta sagði Hammond í útvarpsviðtal í gærmorgun.

Verði samningurinn felldur þurfa Bretar að gera það upp við sig hvort þeir yfirgefi Evrópusambandið samningslausir eða grípi til þess ráðs að fresta útgöngu.