Spár um þingkosningarnar

Dagleg spá breska könnunarfyrirtækisins YouGov segir að enn dragi saman með Íhaldsflokknum og Verkamannaflokknum. Spá YouGov er að Verkamannflokkurin fái 266 þingsæti sem er langt frá tilskyldum meirihluta.

Íhaldsflokkurinn samkvæmt spá You Gov ynni 304 þingsæti en flokkurinn þarf  326 þingsæti til að mynda ríkisstjórn með tryggan þingmeirihluta. Íhaldsflokkurinn er nú með 330 þingsæti. Sé spá YouGov nærri sanni yrði þetta áfall fyrir flokkinn og leiðtoga hans Theresa May forsætisráðherra.

Dagblaðið the Guardian birtir könnun sem er nokkuð á annan veg en könnun YouGov. Könnun the Guardian sýnir að Íhaldsflokkurinn hafi tíu prósenta forskot á Verkamannaflokkinn.

Þrátt fyrir þetta er rætt hvort Verkamannaflokkurinn biðli til annarra flokka um samstarf án þess að ráðgert sé um að þeir flokkar verði beinir þátttakendur í ríkisstjórn undir forystu Verkamannflokksins. Flokkarnir sem eru Skoski þjóðarflokkurinn og Frjáslyndir demókratar gefa ekki nokkur fyrirheit um slíkt samstarf.  

rtá

Nánar www.yougov.com.uk  www.guardian.com