Brennuvargar gómaðir

Á þessum tíma árs eru skógareldar tíðir í Evrópu og oft er íkveikjum um að kenna.

Nú liggja nokkrir slökkviliðsmenn á Sikiley undir grun um að vera brennuvargar.

Þeir hafa verið handteknir og er sagt að þeir hafi ábata af því að kveikja skógarelda sem þeir seinna slökkva sjálfir og þiggja bústna bónusa fyrir vel unnið slökkvistarfið.

Unnið er að rannsókna þessa máls á Sikiley.

 

 

[email protected]