Brennivínslæknirinn í mannamáli

Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi var jafn hispurslaus og hann var vægðarlaus við sjálfan sig í sjónvarpsþættinum Mannamáli í gærkvöld, en þar dró hann ekkert undan í lýsingum sínum á fyllerísárunum í gamla daga, en hálfur fjórði áratugur er frá því hann setti tappann í flöskuna.


Þórarinn glataði bæði landsliðssæti sínu í handbolta og læknisstarfi í Húnaþingi vegna ofboðslegrar drykkju á unglingsárum sínum og allt fram til 31 árs aldur að hann var bæði orðinn atvinnulaus og blankur og með brotna sjálfsmynd. Meðferðin seint á áttunda áratugnum var hans hugljómun og síðan hefur hann ekki skrúfað tappa af flösku. 


Þórarinn ræddi ekki einasta margbrotið lífshlaup sitt í þættinum heldur fór hann mikinn í ádeilu sinni á íslenskt samfélag sem hann segir sjaldan eða aldrei geta sett það í forgang sem raunverulega skipti máli. Skammsýni lýsi Íslendingum öðrum orðum betur, dægurþrasið yfirskyggi allt, en aldrei sé hugsað til þess að byggja um almennilegt og heilbrigt samfélag til framtíðar.


Þátturinn var frumsýndur klukkan 20.00 í gærkvöld. 


Horfðu á klippur úr þætti gærkvöldsins.