„brennivínið er orðið svo dýrt að maður hefur ekki lengur efni á að kaupa sér skó.“

Björn Jón Bragason sagnfræðingur gagnrýnir harðlega hækkun skatta á áfengi en um áramót mun áfengis- og tóbaksgjald hækkar um 2,5 prósent. Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra, hefur sjálfur furðað sig á háu verði á bjór á börum bæjarins en hann lýsti því yfir á Facebook fyrr á árinu að bjór hér á landi væri dýr. Líklegt er að Bjarni þurfi að greiða enn hærra verð fyrir bjórinn á næsta ári. Margir hafa gagnrýnt himinhátt áfengisgjald en einn af þeim er Ólafur Stephen­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, en hann sagði fyrr á árinu að Ísland sé komið langt fram úr þeim ríkj­um sem leggi hæsta skatta á áfenga drykki und­ir yf­ir­skini lýðheilsu­sjón­ar­miða. Ólafur sagði:

„Það virðast eng­in tak­mörk fyr­ir því hvað stjórn­mála­menn eru til­bún­ir að skatt­pína kaup­end­ur.“

Björn Jón er ósáttur við hækkunina og segir að það vanti talsmenn neytenda á Alþingi. Þá er ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir að ganga á undan með kostnaðarhækkanir. Björn Jón segir á Facebook:

„Enn á að hækka skatta á áfengi þrátt fyrir að áfengisverð hér á landi sé 168% hærra en að meðaltali í löndum Evrópusambandsins. Mér varð hugsað til þessa á dögunum þegar ég las meðfylgjandi klausu í dagbók dr. Björns Þórðarsonar, forsætisráðherra 1942–1944, sem ég hef verið að glugga í undanfarið vegna rannsókna minna. Skemmst er frá því að segja að forystumenn flokkanna á Alþingi tóku dável í þessar tillögur.“

Margir taka undir með Birni Jóni. Emil Örn Kristjánsson vitnar í fræga setningu sem höfð er eftir Dodda, Þórði Guðjohnsen, þekktum gleðimanni í Reykjavík en hann sagði:

„Brennivínið er orðið svo dýrt að maður hefur ekki lengur efni á að kaupa sér skó.“

\"\"

Skjáskot sem Björn Jón Bragason birti á Facebook