Brekkukotsannáll öðlast nýtt líf

Kvikmyndin Brekkukotsannáll, sem tekin var upp í tveimur hlutum árið 1972 og hefur verið ófáanleg og ósýningahæf í fjölda mörg ár, hefur nú verið enduruppgerð. Leita þurfti til Norðurlanda og Þýskalands eftir völdum köflum í myndinni, þar sem ekkert heillegt eintak af myndinni var til, hvorki þar né hér og því þurfti að púsla saman eintaki. 

Myndin verður fáanleg á DVD fyrir bókasöfn og skóla hjá Kvikmyndagerðarfélaginu UMBA, en myndin fer ekki í almenna dreifingu þar sem ólíklegt er að það standi undir kostnaði. Þegar þessi mynd var gerð þótti hún þrekvirki og var fyrsta stórmynd sem Ríkissjónvarpið kom að. 

Myndin er gerð eftir skáldsögu Halldórs Laxness og leika í henni margir af fyrstu stórleikurum Íslands sem hafa margir hverjir eru ókunnir yngri kynslóðum. 
Má þar helst nefna Þorstein Ö. Stephensen, Brynjólf Jóhannesson og Regínu Þórðardóttur og að sjálfsögðu Jón Laxdal sem á stórleik sem söngvarinn Garðar Hólm. Einnig má nefna að Sigrún Hjálmtýrsdóttir leikur stóra rullu aðeins 17 ára gömul.

Það er Kvikmyndafélagið Umbi sem sér um endurgerð og hreinsun myndarinnar, í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð, Kvikmyndasafn Íslands og RGB Iceland.