Lögbannskröfu Neytendasamtakanna gegn innheimtufyrirtækinu Almenn innheimta ehf hefur verið hafnað af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Almenn innheimta ehf sér um að innheimta kröfur sem svokölluð smálánafyrirtæki hafa lánað fólki með nokkur þúsunda prósenta vöxtum.
Segja Neytendasamtökin að þessar kröfur séu ólögmætar þar sem hlutfallstala kostnaðar sé töluvert hærri en íslensk lög heimila. Forsvarsmenn smálánafyrirækjanna segja að íslensk lög gildi ekki yfir starfsemi þeirra, en félögin eru öll skráð erlendis.
Í samtali við Mbl.is segir Breki að rökstuðningur sýslumanns hafi verið á þá leið að fólk geti sjálft sótt kröfur sem það eigi inni hjá fyrirtækinu.
„Við ætlum að áfrýja þessu og fara með málið fyrir dóm. Við unum þessu ekki og teljum almannaheill vera undir.“