„Það munar um minna. 0,5 prósent vaxtalækkun á hverja milljón eru 5.000 krónur á ári. Þeir sem skulda þrjátíu milljónir til dæmis borga þá 150.000 krónum minna af vöxtum á ári við þessar breytingar. Það er dágóð búbót fyrir hinn almenna neytanda.“
Þetta segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, í samtali við Morgunblaðið í dag. Fyrir tæpum tveimur vikum tilkynnti Seðlabankinn að hann myndi lækka vexti bankans um 0,5 prósent. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því nú 4 prósent.
Í kjölfarið hafa til að mynda Landsbankinn og Auður, fjármálaþjónusta á vegum Kviku banka, og Arion banki tilkynnt um lækkun á vöxtum sínum.
Landsbankinn tilkynnti á föstudag að bæði innláns- og útlánsvextir yrðu lækkaðir á nýrri vaxtatöflu sem tók gildi um helgina. Fastir vextir óverðtryggðra íbúðalána til 60 mánaða voru lækkaðir um 0,50 prósentustig og sömu vextir til 36 mánaða um 0,30 prósentustig. Vextir á hliðstæðum verðtryggðum lánum lækkuðu um 0,35 prósentustig. Á sama tíma lækkuðu breytilegir innlánsvextir um 0,10-0,50 í flestum tilvikum, en sumir þeirra standa í stað.
Á sama tíma lækkaði Auður sína innlánsvexti úr 4,0 prósent í 3,5 prósent og Arion banki gerði það sömuleiðis.
Íslandsbanki hefur ekki ennþá tilkynnt um lækkun á sínum vöxtum. Breki telur þó líklegt að hann muni gera það, enda spurning um að bjóða viðskiptavinum sínum sem best kjör.