Breiðnefurinn Perry hvarf á ferðalagi um landið, eigandinn óskar þess heitt að fá hann aftur. Zofia Pękala, sem er pólsk og búsett á Íslandi, auglýsir eftir Perry á samfélagmiðlum.
„Breiðnefurinn Perry hefur ferðast með mér síðustu átta árin og hann hvarf skyndilega einhvers staðar á Íslandi,“ segir Zofia. „Ég er alveg viss um að hann var með mér á mánudaginn í Vestmannaeyjum, ég tók svo ferjuna og stoppaði við Sólheimajökul, Seljavallalaug, Seljalandsfoss, Olís bensínstöð, Dominos á Selfossi, Gunnuhver og brúnna milli heimsálfa. Svo fór ég á Keflavíkuflugvöll með vini mína sem voru að fljúga til Varsjá.“
Hún telur líklegt að Perry hafi dottið úr bílnum á leiðinni. Hefur hún hringt á staðina þar sem hún stoppaði, ætlar Zofia svo að keyra leiðina til baka til að leita.
„Kannski gerist kraftaverk og einhver hefur séð Perry síðustu tvo daga. Hann hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir mig.“