Bréf í högum nálgast fyrri stöðu

Finnur Árnason, forstjóri Haga, er einn gesta Jóns G. í kvöld. Þeir ræða aðalfund Haga, sem var í síðustu viku, og uppgjör félagsins. Hagnaður þess eftir skatta var um 2,4 milljarðar króna en var um 4 milljarðar árið áður. Félagið hefur farið í gegnum nokkrar breytingar í ljósi nýrrar samkeppnisstöðu á markaðnum og sýnist markaðurinn hafa tekið þeim vel. Gengi bréfa í félaginu lækkaði verulega eftir að Costco kom á markaðinn. Costco-áhrifin virðast hafa náð einhvers konar jafnvægi og hafa bréfin í Högum hækkað jafnt og þétt frá áramótum. Breytingarnar á verslunum Hagkaups í Smáralind og Kringlunni hafa slegið í gegn og unnið til glæsilegra alþjóðlegra verðlauna að undanförnu. Þannig hreppti Hagkaup gullið í The Transform Awards Europe nýlega fyrir bestu upplifun á vörumerki.