Karlmaður sem dæmdur var í sjö ára fangelsi síðastliðinn október fyrir endurtekin kynferðisbrot gegn barni sínu, frá því að það var á aldrinum 4 til 11 ára, er ekki talin hættulegur öðrum börnum sínum að mati Barnaverndarnefnd Reykjavíkur.
Að mati barnaverndar stafar þrettán ára barni mannsins engin hætta af því að búa með föður sínum en þetta kemur fram í frétt Vísis um málið. Að sögn Kristins Svansson, lögfræðings móðurinnar, fékk barnaverndarnefnd fjölmargar tilkynningar eftir að dómurinn var kveðinn þar sem bent var á kynferðisbrot mannsins.
„Ég hugsa að flestir myndu taka undir það að um leið og þú gerist sekur um jafn alvarlegt brot og þetta að þá er einfaldlega þín forsjárhæfni runnin út í sandinn,“ sagði Kristinn í samtali við Vísi en móðir barnsins vill fyrst og fremst að barninu verði komið í öruggt skjól.