Ævi og störf Péturs Einarssonar eru ekki endilega í anda hversdagsleikans heima á Íslandi, enda ólst hann upp í frönskumælandi Evrópu og hugsaði og hagaði sér á frönsku allt frá því hann man fyrst eftir sér úti í borgunum Brussel, Genf og París.
Þessi sonur sendiherrans Einar Benediktssonar, hvers langafi er samnefndur skáldjöfur og athafnamaður og ævintýrapersóna frá þvi um og eftir þarsíðustu aldamót, segir áhugaverða örlagasögu sína í þætti Sigmundar Ernis, Örlögunum á Hringbraut í kvöld, en eftir gríðarlega velgengi í viðskiptalífinu í City í Lundúnum um og upp úr síðustu aldamótum var sem hann brynni alveg út í starfi; kulnunin varð yfirþyrmandi með svo nístandi hausverkjum og innantökum að hann varð daglangt að loka sig af inni í myrkum herbergjum.
Græðgi starfsins keyrði hann fram af ystu brún - og svo fór að hann baðst lausnar frá þeim kapítalíska heimi nokkrum misserum fyrir hrun - og þótt auðvitað enginn glóra í því að maður sem græddi svo mikið á daginn yfirgævi sjálfa veisluna. En einmitt þannig horfði hann á hrunið utan frá, ekki lengur á meðal innherjanna, kannski dómbærari á orsök þess en ella.
Það er einkar áhugavert að heyra Pétur Einarsson segja þessa sögu sína af einlægni og hispursleysi í þætti kvöldsins, en hann söðlaði algerlega um eftir að hafa gefist upp á fjármálaumsýslu og gerðist kvikmyndagerðarmaður. Nýjasta mynd hans um eftirmál hrunsins er nú komin í almennar sýningar hér á landi eftir að hafa verið meðal skrautblóma alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar, RIFF, sem nýverið lauk í Reykjavík. Og myndin hefur hlotið vægast sagt prýðisviðtökur, tæplega sextíu mínútna löng heimildarmynd, klippt úr 40 klukkustunda upptökum heima og erlendis þar sem eftirsaga hrunsins fær jafnt á sig persónulegan og alþjóðlegan blæ.
Örlögin eru frumsýnd klukkan 20:30 í kvöld.