Auglýsingastofan Brandenburg hefur verið valin auglýsingastofa ársins þriðja árið í röð. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi þjónustu, hugmyndaauðgi, fagleg vinnubrögð og áherslu á árangur viðskiptavina á nýliðnu ári. Þetta var tilkynnt á ÍMARK deginum sem var haldinn á föstudag á Hilton Reykjavík Nordica.
Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Brandenburg, segir í tilkynningu að valið sé mikill heiður fyrir sig og samstarfsfólk sitt. „Ég get ekki verið annað en stoltur af mínu fólki og þetta gefur okkur aukinn kraft til að halda áfram í því skemmtilega umhverfi sem auglýsingabransinn býður upp á.“
Við sama tilefni var Icelandair valið vörumerki ársins fyrir framúrskarandi markaðssetningu á árinu 2018.
Á Facebook síðu MMR segir að valið byggi á árlegri könnun MMR meðal ríflega 350 stjórnenda markaðsmála hjá stærstu auglýsendum landsins. Verðlaunaafhendingin sé hluti af samstarfsverkefni MMR, ÍMARK - Samtaka markaðsfólks á Íslandi, og SÍA - Sambands íslenskra auglýsingastofa. Markmiðið með verðlaunaafhendingunni sé svo að auka upplýsingagjöf um árangur í markaðsstarfi og vekja athygli á því sem vel er gert.