Najib Razak, forsætisráðherra Malasíu, staðfesti í gærkvöld að brak sem fannst á Reunion-eyju á Indlandshafi í síðustu viku sé úr malasísku farþegavélinni MH-370. Þar með virðist ein mesta ráðgáta seinni tíma flugsögu vera leyst.
Vélin hvarf þann 8. mars í fyrra með 239 manneskjur innanborðs. Hún var á leið frá Malasíu til Kína en virðist hafa snúið af leið og flogið fremur til suðurs en norðurs. Leitarsvæðið var lengi vel á víðfeðmu svæði um 5000 kílómetrum frá þeim stað sem brakið fannst.
Razak sagði í gærkvöld að byrðin og óvissan sem fjölskyldur farþeganna hafi þurft að bera hafi verið óbærileg: \"Við höfum nú sannanir fyrir því að vélin fórst á sunnanverðu Indlandshafi,\" sagði Razak.
Brakið úr vélinni sem fannst á eyjunni er um tveir metrar á lengd og er hluti af þotuvæng vélarinnar.