Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að það hafi verið handvömm og alvarleg mistök, að ekki hafi verið brugðist við þegar tilkynning barst um kynferðisbrot starfsmanns Barnaverndar Reykjavíkur árið 2008, að því er RÚV greinir frá.
Maðurinn sætir nú gæsluvarðhaldi, og er grunaður um að hafa beitt sjö börn kynferðisofbeldi. Hann var kærður til lögreglu í fyrrasumar fyrir brot gegn þremur systkinum, en var ekki handtekinn fyrr en í janúar á þessu ári. Hann hélt áfram að starfa með börnum þangað til. Minnst fjórum sinnum áður hafði yfirvöldum verið tilkynnt um meint kynferðisbrot mannsins. Tilkynningar bárust Barnaverndarnefnd 2002 og 2008. Hann var kærður fyrir kynferðisbrot árið 2013 og tilkynnt var um meint brot mannsins til lögreglu árið 2015.
Bragi segir ljóst í téðri frétt að skýrari verklagsreglur um tilkynningar skorti á milli lögreglu og Barnaverndar. Slíku verklagi hafi verið komið á milli heilbrigðisstofnana og Barnaverndar, með góðum árangri.