Vörður, fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, efndi til fundar í vikunni til að taka borgarfulltrúana Hildi Björnsdóttur og Katrínu Atladóttur á teppið fyrir að hafa setið hjá við atkvæðagreiðslu í borgarstjórn um að vísa braggamálinu svokallaða til héraðssaksóknara.
Tillagan var lögð fram af Vigdísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins og studd af þorra borgarfulltrúa minnihlutans. Marta Guðjónsdóttir, sem er eini borgarfulltrúi flokksins sem ekki var settur af fyrir síðustu kosningar, nýtur stuðnings meirihluta stjórnar Varðar. Það heyrir til undantekninga að fundur sem þessi sé haldinn, þar sem til stendur að leggja kjörnum fulltrúum flokksins línurnar.
Nánar á
http://www.vb.is/skodun/braggamalid-i-valholl/152233/