Bræðurnir ákærðir fyrir hundraða milljóna undanskot

Héraðssaksóknari hefur ákært bræður sem kenndir eru við Sjólaskip fyrir meiriháttar skattalagabrot. Þeim er gefið að sök að hafa vantalið til skatts tekjur þriggja útgerðarfélaga sinna upp á rúmlega þrjá milljarða króna á árunum 2006 og 2007.

Þetta er brot úr frétt RÚV en fréttina í heild sinni mál lesa hér.

Því hafi ekki verið greiddur af þeim skattur upp á 819 milljónir króna. Annar bróðirinn er einnig ákærður fyrir að hafa vantalið 412 milljóna króna tekjur sínar og þar með ekki greitt 66 milljóna króna skatt af þeim.

Bræðurnir og fjölskylda þeirra hafa verið kenndir við Sjólaskip. Systur þeirra hafa einnig verið ákærðar. Meint afbrot bræðranna tengjast rekstri sjávarútvegsfyrirtækja sem skráð voru á Kýpur. Þau voru gerð út á veiðar undan vesturströnd Afríku.

Sjá nánar á RÚV.