Það getur myndast mikill ruglingur þegar fyrirtæki með sitthvora vöruna heita sama nafninu og sú varð rauninn um helgina þegar Jón Gnarr leitaði aðstoðar á samfélagsmiðlinum Twitter.
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Jón Gnarr hefði spurði fylgjendur sína á Twitter hvort að munntóbakið eða snusið frá Lyft væri löglegt hérlendis og hvar hann gæti þá pantað vöruna. Fljótlega svaraði alþjóðlega skutlþjónustan Lyft Jóni og þakkaði honum áhugan en benti honum á að þjónusta þeirra væri ekki komin til Íslands.
Þá hrósaði Jón Lyft fyrir vöruna en komst fljótlega að því að um skondinn misskilning var að ræða.
„Er Lyft snúsið löglegt hér á landi? getur maður pantað það? fæst það einhvers staðar? veit það einhver? #snus,“ skrifaði Jón í upphafspósti.
Fyrirtækið svaraði Jóni og þakkaði áhugan en sagði þjónustuna því miður ekki aðgengilega hérlendis. Þá spurði Jón hvort þeir gætu sent vöruna hingað heim. Svaraði fyrirtækið þá:
„Að svo stöddu, gerum við það ekki. Hafðu auga með því ef þetta breytist í framtíðinni!“
Eftir að Jón hafði þakkað fyrirtækinu fyrir svarið og hrósað vörunni skrifaði skutlþjónustan:
„Við kunnum að meta það, takk kærlega fyrir! Eigðu frábæran dag!“
Þá áttaði Jón sig á misskilningnum og greindi þeim frá því að hann væri að tala við rangt fyrirtæki.