Halldór Hauksson, sviðsstjóri meðferðar- og fóstursviðs Barnaverndarstofu sagði í erindi sínu á fundi SÁÁ í gær að alvarlegt væri að barnaverndarkerfið fengi í hendurnar mjög veika einstaklinga sem ættu að vera inni á spítala. Þörf væri á nýju vistheimili fyrir börn sem lokið hafa meðferð en eiga ekki afturkvæmt heim til sín vegna erfiðleika.
Halldór og Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs héldu framsögu á opnum fundi SÁÁ-klúbbsins í gærkvöldi um vímuefnavanda ungs fólks.
Halldór nefndi einnig megin styrkleika þjónustunnar sem væri fjölkerfameðferð sem nefnist MST en sú meðferð dugi þó ekki fyrir einn fimmtung skjólstæðinganna. Slík meðferð fer fram á heimili þess sem á þarf að halda og hafa 600 fjölskyldur hafa nýtt sér meðferðina á undanförnum tíu árum.
Á fundinum sem Morgunblaðið segir frá í dag kom einnig fram að á Stuðla, þar sem neyðarvistun er á lokaðri deild, komi um helmingur barnanna sem dvalið hafa á meðferðarheimili. Fram kemur að 86 einstaklingar komu 211 sinnum á lokaða deild Stuðla í fyrra.
Í máli Valgerðar kom fram að síðasta ári hafi komið á ungmennadeild Vogs 150 einstaklingar sem voru innritaðir 260 sinnum og af þeim sextíu 17 ára eða yngri. Bráð nauðsyn segir Valgerður vera fyrir lokaða meðferðardeild fyrir ungt fólk með fíknivanda.