Bótasvikum sem tengjast Vinnumálastofnun hefur fækkað um helming milli tveggja síðustu ára að því er fram kemur í svari stofnunarinnar til upplýsingaveitunnar spyr.is.
Í svari frá Vinnumálastofnun segir að árið 2014 hafi 102 bótaþegar hlotið viðurlög í málum sem varða lög um atvinnuleysistryggingar. Í þessm málum er þá oftast verið að vísa til óréttmætrar bótatöku, þ.e. mála þar sem bótaþegi hefur orðið uppvís að því að þiggja bætur án þess að hafa til þess réttindi. Í samanburði við árið 2013, er þetta mikil fækkun því þá hlutu samtals 201 bótaþegi viðurlög.
Sandra Árnadóttir hjá Vinnumálastofnun svaraði fyrirspurn lesanda og segir að af tölunum að dæma, megi sjá að málum sem þessum fari fækkandi hjá stofnuninni. Hún segir líklega skýringu vera þá að atvinnuleysi hefur minnkað.
Spurningin sem stofnunin fékk, var þessi: \"Hefur Vinnumálastofnun orðið vör við fækkun svika/óréttmætra bótatöku, hversu mörg slík mál voru upprætt árið 2014 og það sem af er ári 2015? Er samhengi milli þess hvernig aukin atvinna fækkar tilvikum sem þessum?\"
Spyr.is sendi fyrirspurnina til Vinnumálastofnunar og fyrir þeirra hönd svaraði Sandra Árnadóttir: \"Stofnunin getur ekki gefið upp upplýsingar um fjölda viðurlagaákvarðana á árinu 2015 að svo stöddu en því er til að svara að á árinu 2014 voru það samtals 102 bótaþegar sem hlutu viðurlög í málum er vörðuðu brot á lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Til samanburðar við árið 2013 þá voru það samtals 201 bótaþegar sem hlutu viðurlög. Því er ljóst að brotum á lögum um atvinnuleysistryggingar fer fækkandi sem aðallega má skýra með minnkandi atvinnuleysi.\"