Athyglisverðar og siðferðislega merkilega upplýsingar komu fram í þættinum Sjónarhorni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld, en þar fjallaði þáttastjórnandinn Þórdís Lóa Þórhallsdóttir um flest það sem viðkemur því eina örugga í lífinu; dauðann.
Meðal viðmælenda í Sjónarhorni var Dögg Pálsdóttir, aðjunkt í Háskólanum í Reykjavík en hún sagði að vaninn væri sá - og raunar almenn regla - að öndun og hjartslætti lífvana kvenna sem ganga með barn, væri viðhaldið þar til barn hefur verið tekið með keisaraskurði. Ýmsir liðir hafi þar áhrif, meðal annars hversu langt á meðgöngu konur eru komnar þegar þær falla frá. Læknar meti lífslíkur barnsins og frekari meðferð sé ákveðin í ljósi þess.
Nánar má fræðast um líknarmál í þætti Sjónarhorns sem hægt er að nálgast undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is þar sem allir þættir sjónvarpsstöðvarinnar eru aðgengilegir, jafnt í heild sinni sem og í styttri klippum.