Börn skuli sérstaklega vernduð

Katrín Oddsdóttir mannréttindalögfræðingur telur engan vafa leika á því að hægt hefði verið að veita albanska fólkinu dvalarleyfi á grunni þess að um langveikt barn væri að ræða.

Í færslu á facebook vísar Katrín í 12. grein laga um útlendinga þar sem segi um dvalarleyfi á grundvelli sjónarmiða:

„Heimilt er að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt ekki sé fullnægt öllum skilyrðum 11. gr., ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla hans við landið.“

Veita megi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, „...t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.“