Börn sérfræðingar í að fela kvíða

Inga Wessman sálfræðingur í Litlu kvðíðameðferðastöðinni og Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins ræða um kvíða barna í þættinum ,,Fólk með Sirrý\" á miðvikudagskvöld kl. 20:30. Sigþrúður segir að dag hvern séu um 10 börn í Kvennaathvarfinu, allt árið um kring. Og mörg þeirra sýna mikil einkenni kvíða vegna erfiðrar lífsreynslu og erfiðra aðstæðna sem þau þurftu að flýja ásamt móður sinni. Sum kvarta yfir líkamlegum verkjum en önnur börn eru sérfræðingar í að fela kvíðann. Sigþrúður segir að sum börn séu mjög vör um sig og fljót að finna út hvar eftirlitsmyndavélarnar við húsið eru staðsettar og hafa jafnvel áhyggjur af því að aðeins eru 3 eftirlitsmyndavélar en hliðar hússins eru fjórar. Í þættinum ræða Sigrþrúður og Inga Wessman sálfræðingur um birtingarmynd kvíða hjá börnum. Og hvernig kvíði getur rænt börn lífsgæðum æskunnar. Hér má sjá brot úr þættinum.