Börn segja ýmislegt um foreldra sína í leikskólanum

Vita foreldrar hvað börnin þeirra eru að gera allan daginn? Og hvers vegna þarf margra ára háskólamenntun til að passa börn? Um þetta var rætt í Fólki með Sirrý sem sýndur var á Hringbraut í gærkveldi. Þar ræddi Sirrý við þrjá leikskólakennara um starfið og hvers vegna þetta starf varð fyrir valinu.

Gísli Atlason sagðist reyndar ekki hafa hugleitt leikskólakennaran sem starf, þegar hann fór í háskóla. Á þeim tíma var hann meira að velta því fyrir sér hvort hann ætti ekki að verða lögfræðingur eins og faðir sinn. En þetta breyttist og í dag starfar Gísli Atlason á leikskólanum Mýri.

Í þættinum var meðal annars rætt um viðhorf foreldra til starfsins á leikskólum. Og ekki síst, þær ógleymanlegu sögur sem börnin segja. ,,Já alveg eins og mamma, nema hún er með skegg á rassinum” var til dæmis eitt sinn sagt við Gísla, sem gat ekki annað en brosað í laumi. Hér er sýnishorn úr þætti gærkveldsins, en hann er endursýndur í allan dag á Hringbraut.