Aðeins örfáum dögum eftir umsátur lögreglu á Akureyri þar sem byssumaður skaut af riffli inn í íbúðir nágranna sinna er nú mikill fjöldi sérsveitarmanna að störfum í Garðinum þar sem byssumaður virtist ganga laus og ógna umhverfi sínu.
Vísir.is sagði fyrst frá málinu. Lögreglan hefur lokað Garðskagavegi frá Helguvík og að Garði. Var óskað eftir aðstoð frá sérsveit ríkislögreglustjóra sem mætti á miklum hraða á vettvang segir í frétt Vísis. Útgöngubann er skv. visir.is í leikskólanum og grunnskólanum Garði. Segir Rúv að skothvellir hafi heyrst nærri Garði.
Fréttin verður uppfærð.
Uppfært kl. 11.08: Eftir því sem fram kemur á mbl.is segir skólastjóri Gerðaskóla, Ágúst Ólason, að engin hætta sé á ferðum í bænum sjálfum og \"ekkert hæft í fréttum um að útgöngubann ríki í grunnskólanum líkt og fram kom á Vísi áðan\" eins og segir í frétt mbl.is
Uppfært 11:23: Rúv var að greina frá því að aðgerðum lögreglu við Garð væri lokið.
Grunur hafi leikið á að vopnaður maður hafi verið á ferð nærri fiskhjöllum. Virðist sem allt tilstandið hafi orðið eftir að sjálfvirkar gasbyssur eða svokallaðar fuglafælur sendu mér sér hvelli nálægt hjöllunum.