Börn kvarta undan myndbirtingum foreldra á samfélagsmiðlum - „vilja ekki endilega að þetta sé til þarna úti“

„Við fáum ýmsar ábendingar um þessi mál, ekki síst frá börnunum sjálfum, þar sem þau eru að spyrja og kvarta undan því að það sé verið að birta myndir. Til dæmis að foreldrar birti alls konar efni um þau á samfélagsmiðlum, sem þau eru kannski ekki sátt við.“

Þetta segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna, í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Þar greinir hún frá því hvernig börn hafi kvartað til embættisins vegna myndbirtinga foreldra þeirra á samfélagsmiðlum.

Hún nefnir athyglisvert dæmi:

„Við fengum dæmi fyrir nokkrum misserum síðan þar sem var stúlka í grunnskóla sem velti því fyrir sér hvort móðir hennar hefði mátt birta einkunnir hennar á Facebook. Hún hafði staðið sig mjög vel í skóla, það var ekki vandamálið. Hún vildi bara ekki að þessar einkunnir væru birtar með þessum hætti og mamma hennar hafði ekki spurt. Það er verið að birta alls konar myndir sem koma til með að lifa á miðlunum um ókomin ár og þau eiga eftir að lifa með. Þau vilja ekkert endilega að þetta sé til þarna úti.“

 „Við búum núna í allt öðrum veruleika en áður. Foreldrar gera sér kannski ekki grein fyrir því hvaða áhrif þetta hefur á börn,“ segir Salvör og bætir við að þegar börn eru komin í grunnskóla séu foreldrar jafnvel þegar búnir að birta þúsundir mynda á samfélagsmiðlum.

Hún segir mikilvægt að þegar fólk tali um börn sín eða birti eitthvað um þau, að staldra við og hugsa hvaða áhrif birtingin geti haft á börnin. Þá ættu foreldrar að spyrja börnin hvort þau séu samþykk birtingunni. Umboðsmaður barna hefur gefið út leiðbeiningar fyrir foreldra, sem má nálgast hér.

Brotið gegn friðhelgi

Salvör nefnir áhugaverðan dóm sem nýverið var kveðinn upp í Noregi. „Það var kona sem var að berjast við barnaverndaryfirvöld. Var með Facebook-síðu og birti alls konar upplýsingar um barnið og í mjög vandasömum aðstæðum og erfiðum, jafnvel grátandi og lýsti líðan barnsins. Hún fékk dóm fyrir að hafa brotið gegn friðhelgi barnsins.“

„Það er verið að birta oft viðtöl við foreldra sem eru í deilum við barnaverndaryfirvöld eða í deilum hvort við annað. Þau eru að birta myndir af börnunum og jafnvel þó þau séu ekki að birta myndir eða nöfn barnanna þá eru þau að lýsa aðstæðum þeirra, líðan þeirra, hvað þau hafi sagt, hvað þau vilji vera, hvað þau vilji gera, greiningar sem börnin hafa farið í gegnum o.s.frv. Þannig að þetta eru alveg svakalega miklar og viðkvæmar upplýsingar,“ bætir hún við.

„Við höfum heyrt mörg dæmi um börn sem eru í þessum aðstæðum að bara birtingin með þessum hætti er mjög sársaukafull fyrir börnin og getur valdið einelti í skóla daginn eftir. Þetta eykur vanda barnanna en minnkar hann ekki. Þó að foreldrarnir haldi kannski að þeir séu að gera gott þá á endanum eykur þetta vanda barnanna,“ segir Salvör einnig.