Börn fundu amfetamín - „þarf ekki að spyrja að leikslokum“

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir frá því að 11 ára gömul börn hafi komið á lögreglustöð þeirra í Reykjanesbæ með nokkra litla poka af hvítu efni. Kom í ljós að um óblandað og sterkt amfetamín væri að ræða í öllum pokunum.

Lögreglan hrósaði börnunum fyrir að skila pokunum til sín og sagði að það hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum hefðu yngri börn fundið pokana. Í tilkynningu lögreglunnar er eigandinn hvattur til að koma á lögreglustöðina í Reykjanesbæ og sækja pokana sína.