Hlynur Bæringsson, fyrirliði körfuboltalandsliðsins, og Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, eru gestir Þjóðbrautar í kvöld. Þau tala um útkomuna úr PISA-könnuninni, þýðingu þess að við stöndum okkur vel í skólum og eins um einstaka árangur í íþróttum á árinu 2016.
Þau tala um kvíða barna og hvort við gerum óraunhæfar kröfur til barna. Hrefna upplýsir að þegar fundað er um kvíða barna mæti mjög margir foreldrar sem sýni að fólk hefur áhyggjur.
Þátturinn er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.