Börn Bjarna lenda í að illa sé talað um föður þeirra: „Ég tala þá al­mennt um það hversu gott við höfum það“

Bjarni Bene­dikts­son var í við­tali í Ís­land í dag hjá Sindra Sindra­syni. Þar var greint frá því að börn Bjarna hafi lent í því að illa sé talað um föður þeirra í skólanum. Bjarni var þá spurður hvernig hann bregst við. Bjarni hefur þá sagt við börn sín:

„Þetta er heimurinn. Við erum heppin að búa á þessu landi. Við erum svona í lífs­kjörum, ef við myndum taka allan heiminn í einu prósentinu sem hefur það best. Þegar börnin mín fara að kvarta undan til­verunni þá segi ég, eigum við að setja hlutina að­eins í sam­hengi. Eigum við að­eins að ræða það hvernig við höfum það sem fólk.“ Bjarni bætti við:

„Ég tala þá al­mennt um það hversu gott við höfum það hér á þessu landi. En ég er ekki í því að pakka börnunum mínum inn í bóm­ull. Það mun ekki gera neitt. Fólk mun lenda í á­tökum í lífinu, á vinnu­stað, sama hvar þú kemur í lífinu, þú getur alls staðar mætt mót­læti.“

Þá var Bjarni spurður hvort hann vildi sjá börn sín í pólitík. Þeirri spurningu var svarað neitandi en bætti svo við:

„Ef þau kæmu til mín og hérna innra með þeim brynni eldur fyrir því að láta til sín taka í þágu sam­fé­lagsins, þá myndi ég styðja þau heils­hugar.“

„En ef það væri fyrir vinstri græna, Sam­fylkinguna eða Pírata?“ spurði Sindri Sindra­son og sagði Bjarni það engu máli skipta.

Myndi það engu máli skipta? Spurði Sindri þá. Bjarni svaraði:

„Nei nei, en þá myndi ég þurfa að tala við Þóru og segja henni: „Upp­eldið mis­tókst.“