Hvert skref er hættulegt

„Danger every step of the way“ –  Hætta við hvert fótmál, segir á forsíðu nýrrar skýrslu barnahjálpar sameinuðu þjóðanna, Unicef um börn á flótta. Börnin eru á aldrinum 12 til 17 ára og taka mörg skref frá heimilum sínum frá Afríku til Evrópu. Fleiri en sjö þúsund börn hafa flúið sjóleiðina til Ítalíu á árinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna UNICEF. Skýrslan vekur athygli á þeim börnum sem koma ekki bara frá Sýrlandi heldur þeim sem t.d. flýja Boko Haram öfgamennina og flýja þá fyrst til Líbíu og svo upp eftir Evrópu. Þau fara langa leið, taka mörg skref sem öll eru hættuleg. Mörg þeirra verða vinnuþrælar glæpamanna sem segjast vilja greiða þeim leið og mörg eru seld í vændi. 

Sigriður Víðis Jónsdóttir, kynningarstjóri Unicef á Íslandi ræddi efni skýrslunnar á Hringbraut. Hún segir að við þurfum að horfa á málin öðruvísi. Í Evrópu sé flóttafólk í vanda svo við stöndum frammi fyrir flóttamannaverkefni, ekki flóttamannavanda. Fólkið sé ekki vandamálið heldur aðstæður þess.

Í skýrslunni kemur t.d. fram að níu af hverjum tíu flóttabörnum sem komið hafa sjóleiðina frá Norður-Afríku til Ítalíu á þessu ári eru ekki í fylgd fullorðinna. Tvöfalt fleiri fylgdarlaus börn hafa komið til Ítalíu á fyrstu fimm mánuðum ársins samanborið við árið í fyrra.