Boris johnsson verður forsetisráðherra bretlands

Nú rétt í þessu var Broris Johnson kjörinn leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi. Mun hann taka við sem forsætisráðherra Bretlands af Thereseu May, en hún sagði af sér embættinu fyrir stuttu. Johnson fékk nærri 66 prósent atkvæða en mótframbjóðandi hans, Jeremy Hunt, fékk eingöngu 33 prósent atkvæða. Hunt, sem er sitjandi utanríkisráðherra, mun líklega segja af sér í kjölfarið á sigri Johnson.
 
Boris Johnson var á ellefta tímanum kjörinn nýr leiðtogi Íhaldsflokksins. Hann tekur við forsætisráðuneytinu af Thereseu May sem gengur á fund Elísabetar Bretadrottningar á morgun og biðst lausnar eftir óundirbúinn fyrirspurnatíma á breska þinginu. Johnson hafði betur gegn Jeremy Hunt, utanríkisráðherra, sem væntanlega segir af sér í framhaldinu.
 
Eftir að úrslitin voru ljós þakkaði Johnson henni May fyrir störf sín sem forsetisráðherra.
 
„Það voru forréttindi að vera ráðherra í ríkisstjórn hennar og verða vitni að ástríðu hennar fyrir þeim málum sem hún brann fyrir.“
 

„Þú hefur fullan stuðning minn,“ sagði May.

Ljóst er að Johnson á erfitt starf fram undan en Bretland á enn eftir að semja um útgöngu sína úr Evrópusambandinu, sem virðist ætla að taka mun lengri tíma en áætlað var með í byrjun.