Boris johnson, utanríkisráðherra íslands?

Hver er utanríkisstefna lýðveldisins Íslands?

Er hún einhver? 

Og ef svo er, hver ræður henni þá?

Þessar spurningar vakna við nýlegar yfirlýsingar utanríkisráðherra Íslands, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, sem helst virðast benda til þess að utanríkisstefna Íslands felist í Brexit og það sé Boris Johnson sem ráði henni.

Daður Guðlaugs Þórs við Brexit-öflin á Bretlandi allt frá því hann tók við lyklavöldunum í utanríkisráðuneytinu er satt að segja að verða nokkuð vandræðalegt.

\"\"
Brexit-stuðningurGuðlaugur Þór tekur harða afstöðu með Bretum fyrir hönd Íslendinga.
Mynd: Skjáskot: Viðskiptablaðið

Nú síðast vöktu stóra furðu yfirlýsingar Guðlaugs um að vandræðagangur Breta vegna Brexit sýndi glögglega hve erfitt væri að ganga úr Evrópusambandinu.

Það væri því ein enn sönnun þess að Íslendingar skyldu halda sig sem lengst fjarri þessu stórhættulega sambandi.

Þótt Guðlaugur Þór hafi vissulega ekki tekið til orða nákvæmlega svona.

Gallinn við þessi orð Guðlaugs var sá að þetta var bara þvaður. Eins og margir bentu strax vel og skilmerkilega á, þá er vandræðagangur Breta ekki kominn af þeirri ætlun þeirra að ganga úr Evrópusambandinu. 

Það væri enginn vandi, þeir gætu sem hægast farið strax seinni partinn á morgun.

Vandræðagangurinn stafar af því að Bretar vilja halda í kostina við að vera í ESB en sleppa við það sem Brexit-sinnar telja vera galla.

\"\"
Hótun til ESB„Íslendingar“ hóta Evrópusambandinu til að knýja fram hagsmuni Breta í Brexit.

Þeir vilja sem sagt bæði halda og sleppa – og af því stafa vandræði þeirra.

Að utanríkisráðherra Íslands fari með svo augljóst fleipur eins og Guðlaugur Þór gerði í þessu tilfelli, það finnst mér satt að segja nokkuð alvarlegt mál.

etri vitund, sem heitir í minni sveit að ljúga.