Borgunarsalan: bankasýslan krefst svara

Bankasýsla ríkisins sendi bankaráði Landsbankans bréf í gær þar sem krafist er ítarlegra upplýsinga um söluna á Borgun. Bankaráðið fær frest til tólfta febrúar til að svara.
 

Þetta kom fram í máli Lárusar L. Blöndal og Jóns Gunnars Jónssonar sem komu fyrir fjárlaganefnd í morgun fyrir hönd Bankasýslu ríkisins til að skýra hvernig eigendastefnu hafi verið framfylgt við sölu hlutar Landsbankans í Borgun, en í frétt RÚV af málinu, sem hér er vitnað til, er efni fundarins reifað. 

Bankasýsla ríkisins var boðið á fund fjárlaganefndar vegna sölu hlutar Landsbankans í Borgun. Í bréfi sem sent var bankasýslunni segir að frá því að bankarnir komust í hendur ríkisins berist reglulega fréttir af því að eignir hafi verið seldar án þess að fara í útboð. Megi þar nefna Húsasmiðjuna, EJS, Plastprent, Icelandic, Skýrr, EJS, HugAX, Vodafone, Símann og Borgun. Forsvarsmenn stofnunarinnar séu vegna þessa boðaðir á fund þar sem farið verður yfir hvað stofnunin hefur gert til að ná fram markmiðum eigendastefnu ríkisins. 

Stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis ætlar einnig að taka söluna fyrir á þriðjudaginn eftir tæpa viku. Landsbankinn ætlar að afhenda Alþingi samantekt um sölu bankans á hlutnum.