Borgunarmálið: týpískur karlaklúbbur?

Ólafur Arnarson, pistlahöfundur og þáttastjórnandi á Hringbraut bendir á í nýjasta pistli sínum að Einar Sveinsson, sem hagnast hefur á Borgunarsölu Landsbankans sat í stjórn Íslandsbanka á sama tíma og helstu gerendur viðskiptanna störfuðu þar einnig.

Tilviljun, spyr Ólafur og segir tíma samsæriskenninganna heldur betur uppi: \"Nú hefur DV birt frétt um að Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, Tryggvi Pálsson, stjórnarformaður bankans og Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, sem einnig fór fyrir kaupendunum sem keyptu af Landsbankanum, hafi allir starfað saman í stjórnendateymi Íslandsbanka í 10 ár fram til síðustu aldamóta. Forstjóri Borgunar hefur fullyrt að þremenningarnir hafi ekkert samband haft sín á milli síðan og alls ekki í tengslum við kaupin á Borgunarhlutnum. Já, við trúum því,\" skrifar Ólafur.

Og talandi um tilviljanir: \"En þremenningarnir, Steinþór, Tryggvi og Haukur eru ekki þeir einu úr fjárfestahópnum, sem rekja rætur sínar til gamla Íslandsbanka undir lok síðustu aldar. Þá sat í stjórn Íslandsbanka maður að nafni Einar Sveinsson – sá sami og græddi svo vel á þátttöku í kaupunum á Borgun af Landsbankanum. Einar sat um árabil í stjórn Íslandsbanka og félag hans, Hrómundur ehf., var einn stærsti hluthafi í bankanum.\"

Og Ólafur skrifar enn: \"Já, nú hlýtur að vera mikið fjör hjá öllum sem aðhyllast samsæriskenningar. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, virðist átta sig á því hve staðan er í raun gersamlega töpuð. Í gær ritaði hann bréf til stórnar Bankasýslu ríkisins vegna málsins. Þar kemur fram að hann hefur alvarlegar áhyggjur af því hve mjög Borgunarsalan og umræðan um hana hefur grafið undan trausti á bankanum og skaðað orðspor hans. Niðurlag bréfs fjármálaráðherra er ekki hægt að skilja á annan veg en þann að hann ætlist til þess að Bankasýslan hlutist til um að skipt verði um bankaráð Landsbankans og tryggt verði að nýtt bankaráð láti það verða sitt fyrsta verk að reka bankastjórann. Þá er ekki víst að Einar frændi og gömlu félagarnir úr Íslandsbanka geti framar gert sér mat úr eignum ríkisbankans.

Kannski dugar þetta til að draga úr því tjóni sem orðspor bankans og pólitískt orðspor Bjarna hefur orðið fyrir vegna Borgunarmálsins. Skyldi samt eitthvað fleira eiga eftir að koma upp á yfirborðið varðandi þessa skelfilegu Borgunarsölu Landsbankans,\" spyr Ólafur Arnarson á vef Hringbrautar.