Borgunarmálið var skoðað í þaula af ritstjórunum í samnefndum þætti á Hringbraut í gærkvöld en varla hefur nokkurt annað mál vakið jafn mikla athygli í fjölmiðlum og umræðum manna á millum síðustu daga.
Þáttinn má sjá hér á vef Hringbrautar, en það voru þær Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins og Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans sem settust að þessu sinni á rökstóla með Sigmundi Erni, ritstjóra Hringbrautar og þau fjölluðu um þátt Landsbankamanna í þeirri undarlegu viðskiptafléttu sem Borgunarmálið er, en svo vægt sé til orða tekið er þar margt harla ógagnsætt og óupplýst, þó hitt sé augljóst að málið hefur valdið bankanum og stjórnendum hans skaða. Eyrun og Þórunn Elísabet deiltu hart á þennan gjörning sem í þeirra huga klingir álíka viðvörunarbjöllum og hefðu átt að heyrast betur í aðdraganda hrunsins - og undarlegt væri, svo ekki sé meira sagt, að slíkar bjöllur vektu ekki í dag með ráðamönnum í viðskiptalífinu meiri hughrif en raun ber vitni. Í Borgunarmálinu ætti eftir að upplýsa þjóðina mun betur og meira en gert hefði verið að kalla yrði eftir gleggri upplýsingum.
Þetta er þriðja málið á stuttum tíma þar sem sala á eignarhlut banka í fyrirtækjum verður í meira lagi umdeild, en skemmst er að minnast Valitorsmálsins og sölu Arion banka og Símahlutnum sem fór einnig í útvaldar hendur, rétt eins og Borgunarhluturinn - og án útboðs.
Meðal annarra umræðuefna í Ritstjórum kvöldsins er undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar sem stöllunum leyst vel á, hugsanlegir forsetaframbjóðendur sem kannski verða ekki álitlegri en svo að Ólafur Ragnar \"neyðist\" til að fara fram aftur og vaxandi áhugi forsætisráðherra á húsakosti höfuðborgarinnar sem hefur fengið hárin til að rísa á stöku borgarfulltrúa á undanliðnum dögum, en Ritstjórunum þótti svolítið sjarmerandi í sjálfu sér þótt ráðherra yrði, hvort sem honum líkaði betur eða verr, að virða víglínur milli borgar og ríkis, svo og raunar ráðuneyta.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld, endursýndir í dag og svo um helgina.