\"Upp er komin nokkuð merkileg staða í Borgunarmálinu,\" skrifar lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson á fésbók sína um helgina og lætur að því liggja rannsaka þurfi það sem hugsanlegt fjársvikamál.
\"Landsbankamenn virðast telja stjórnendur Borgunar hafa leynt mikilvægum upplýsingum í söluferlinu. Hafi stjórnendur Borgunar vitað af því að vænta mætti umtalsverðra greiðslna úr sölunni á VISA Europe, en ekki upplýst bankann, þá er búið að haka í ansi mörg box fjársvikaákvæðisins í 248.gr. alm. hgl. en þar segir:
„Ef maður kemur öðrum manni til að hafast eitthvað að eða láta eitthvað ógert með því á ólögmætan hátt að vekja, styrkja eða hagnýta sér ranga eða óljósa hugmynd hans um einhver atvik, og hefur þannig fé af honum eða öðrum, þá varðar það fangelsi allt að 6 árum.\"
Nægir þar að vísa til dóms Hæstaréttar er í málinu er varðaði söluna á eigninni sem nú heitir Bríetartún 1 og hýsir Kínverksa sendiráðið.
Málið veltur því á tvennu:
1. Hvað vissu stjórnendur Borgunar (eða hlutu að hafa vitað)?
2. Hvað var Landsbankinn upplýstur um?
Ef sannað þykir að Landsbankinn hafi aldrei verið upplýstur um þennan hugsanlega búhnykk, en ósannað að Borgunarmenn hafi vitað eða hlotið að hafa vitað af söluréttinum, er fullkomlega ljóst að viðsemjendum bankans er ekki stætt á öðru en gangast undir það að bankinn njóti söluandvirðisins af VISA Europe.
Því að stjórnendur Borgunar, sem jafnframt eru í kaupendahópi, áttu a.m.k. að vita af þessu,\" skrifar lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson .