Borgunarmálið: glórulaus afsökun!

\"Hvernig Steinþóri er stætt að sitja áfram sem bankastjóri skil ég ekki. Er ekki augljóslega glórulaust að selja stjórnendum jafn verðmætt fyrirtæki og Borgun er (og var) án útboðs,\" spyr Jón Steinsson, prófessor í haffræði við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum.

Á nýjustu fésbókarfærslu sinni veltir hann Borgunarmálinu fyrir sér og spyr spurninga varðandi framtíð Landsbankastjórans: \"Er ekki augljóslega glórulaus afsökun að hann hafi ekki vitað af þessum mögulegu greiðslum? Var það ekki hans að kynna sér virði fyrirtækisins áður en það var selt?\"

Hann heldur áfram: \"Svo er náttúrulega sú \"tilviljun\" að náfrændur fjármálaráðherra hafi auðgast á þessu drullumalli á kostnað skattgreiðenda kapituli út af fyrir sig.\"

Og spurningarnar hrannast upp í tilskrifi prófessorsins: \"Eins og svo oft áður á Íslandi virðast ráðamenn fá að njóta vafans. Þetta er jú allt gott fólk sem er af góðu fólki komið og er að vinna í góðri trú fyrir almenning, eða hvað? Eða hvað? Svona hugsunarháttur leiðir bara til þess að til staðar er gríðarlegur hvati hjá þeim sem sitja að kjötkötlunum að gera út á eigur almennings.\"

Niðurstaða Jóns er þessi: \"Það er tími til kominn að almenningur veiti ráðafólki almennilegt aðhald þegar svona mál koma upp,\" skrifar hann og bendir á að það væri hægt að byggja heila álmu við Landspítalann fyrir peningana sem \"hér voru afhentir fáeinum afskaplega útvöldum aðilum.\"