Borgunarmálið: bankaráðið þarf að fara!

Hagfræðingurinn og pistlahöfundurinn Ólafur Arnarson segir í sínu nýjasta tilskrifi að peðsfórn dugi ekki í Borgunarmálinu, ábyrgð bankaráðs Landsbankans og fleiri stjórnenda en Steinþórs Pálssonar eins sé mikil og augljós og skipta verði um fjölda manns í brúnni.

Hann segir ljóst af áliti Bankasýslu ríkisins að yfirstjórn Landsbankans hafi með öllu brugðist í Borgunarmálinu, en ekki dugi að fórna bankastjóranum einum og halda að þar með sé búið að gera upp við þetta hneykslismál.

\"Engum heilvita manni kemur til hugar að Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hafi staðið einn að sölunni á Borgunarhlutnum,\" skrifar Ólafur og heldur áfram: \"Bankaráðið ber fulla ábyrgð á sölunni og kom að henni með beinum hætti. Árið 2013 hafði bankaráðið sérstaklega fjallað um söluréttinn á Visa Europe og verðmæti hans, nokkuð sem bankastjórinn virðist ekki frétt af ef marka má yfirlýsingar hans til fjölmiðla eftir að gróðinn af þeim sölurétti komst í hámæli fyrr á þessu ári.\"

Því telur Ólafur ljóst að traust á Landsbankanum verði ekki endurreist með því einu að reka bankastjórann, þó að jafn ljóst sé að bankastjóraferli Steinþórs Pálssonar sé lokið: \"Bankaráðið í heild sinni verður að axla ábyrgð með því að víkja. Sama máli gildir um stjórnendur fyrirtækjasviðs bankans, sem hljóta að hafa leikið lykilhlutverk í þessu lokaða söluferli,\" skrifar Ólafur og heldur þétt á penna.

Hann segir að ef það sé á annað borð markmið Bankasýslunnar og fjármálaráðherra að endurreisa traust almennings og markaðarins á Landsbankanum sé nauðsynlegt að allir helstu stjórnendur bankans að bankastjóra og bankaráðsmönnum meðtöldum hverfi frá bankanum. Raunar megi fjármálaráðherra þakka fyrir ef hann sleppi frá þessu máli, slík séu tengsl þess við fjölskyldu hans.

Hann minnir á stórkostleg mistök bankans í öllu þessu máli. Í gagnrýni sinni á gjörðir Landsbankans vísi Bankasýslan einmitt í söluna á Vestia inn í Framtakssjóð Íslands 2010, þegar bankinn fékk harða gagnrýni fyrir að selja verðmætar eignir í lokuðu og ógegnsæju ferli: \"Telur Bankasýslan raunar mikilli furðu sæta, eftir reynsluna úr Vestia sölunni, að stjórnendur bankans skuli hafa látið sér koma til hugar að selja Borgun í lokuðu ferli,\" skrifar Ólafur og minnir enn á: \"Þessu til viðbótar bendir Bankasýslan á hversu fráleitt það er að selja fjárfestahópi, sem inniheldur stjórnendur Borgunar, í lokuðu ferli. Einmitt hefði verið sérstök ástæða til að opna ferlið og láta markaðinn verðmeta hlutinn en ekki afgreiða málið í prívatpukri stjórnenda Landsbankans og Borgunar í lokuðu herbergi.\"

Þarna liggi hundurinn grafinn.