Borgun: vitlausasta sem við höfum gert

\"Þetta er það vitlausasta sem við höfum gert, að selja þarna, það var hörmung að gera það, eftir á að hyggja,“ segir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, um sölu starfsmanna og stjórnenda Borgunar á 3,85 prósenta hlut í Borgun til Eignarhaldsfélagsins Borgunar í júlí á síðasta ári. 

Þetta kemur fram í viðtali við Hauk í Fréttablaðinu í morgun, en þar kemur fram að söluverðið hafi miðast við aðheildar­virði Borgunar væri 11 milljarðar króna. Söluverð Landsbankans á 31,2 prósenta hlut í Borgun, í nóvember 2014 átta mánuðum áður, miðaði við að Borgun væri metin á 7 milljarða króna. Landsbankinn seldi þá 25 prósenta hlut til Eignarhaldsfélagsins Borgunar á 1.751 milljón króna og 6,2 prósenta hlut til BPS á 433 milljónir króna. Því jókst virði Borgunar um 57 prósent á átta mánuðum.

Haukur segir við blaðið að hækkunin skýrist einkum af aukinni eftirspurn eftir hlutabréfum á Íslandi á tímabilinu. Hlutabréfaverð á Íslandi hafi hækkað mikið á síðari hluta ársins 2014 og á árinu 2015. Hann segir engu síður að kaupverðið staðfesti að forsvarsmenn Borgunar hafi ekki vitað að Visa Inc. hygðist nýta sér valrétt til að eignast Visa Europe: \"Við höfðum ekki hugmynd um þetta þá, ekki frekar en aðrir,“ segir Haukur.

Rúmum tveimur mánuðum eftir að salan á hlut starfsmanna og stjórnenda gekk í gegn, tilkynnti Visa Inc. að það hygðist nýta sér valrétt til að kaupa Visa Europe á um 3.000 milljarða íslenskra króna. Borgun á von á tæplega 5 milljarða peningagreiðslu vegna þessa. 

Haukur segir við blaðið að ljóst sé að hann og aðrir stjórnendur og starfsmenn Borgunar muni tapa á sölunni síðasta sumar. Engin ákvæði hafi verið um viðbótargreiðslu ef af kaupunum á Visa Europe yrði: \"Verðmatið eftir dílinn er miklu, miklu, hærra en þetta. Þannig að það er alveg augljóst að við vorum alveg grunlaus um að þetta væri að koma,“ en í frétinni er vitnað til skrifa Morgunblaðsins frá því fyrr í febrúar þar sem sagði frá því að í nýju verðmati KPMG væri Borgun metin á 19 til 26 milljarða króna.