Borgun metin á allt að 26 milljarða

Í nýju virðismati sem KPMG hef­ur unnið fyr­ir stjórn Borg­un­ar er fyr­ir­tækið metið á 19 til 26 millj­arða króna. Þetta herma áreiðan­leg­ar heim­ild­ir Morg­un­blaðsins.

Í efri mörk­um virðismats­ins, sem um er fjallað í Morg­un­blaðinu í dag, er fullt til­lit tekið til þeirra tekna sem yf­ir­taka Visa In­ternati­onal Service á Visa Europe mun geta tryggt fyr­ir­tæk­inu.

Í lok nóv­em­ber 2014 til­kynnti Lands­bank­inn sölu á 31,2% hlut sín­um í Borg­un til hóps fjár­festa og stjórn­enda Borg­un­ar. Sölu­verð hlut­ar­ins var sagt tæp­ir 2,2 millj­arðar króna. Sé virði hlut­ar­ins metið út frá virðismati KPMG er hann nú um 6 til 8 millj­arðar króna eða nærri 4 til 6 millj­örðum hærri en þegar Lands­bank­inn seldi.

Þegar Morg­un­blaðið leitaði viðbragða Hauks Odds­son­ar, for­stjóra Borg­un­ar, og Er­lends Magnús­son­ar stjórn­ar­for­manns fyr­ir­tæk­is­ins, vildu þeir ekk­ert tjá sig um efni og inni­hald verðmats­ins.

Íslands­banki er stærsti eig­andi Borg­un­ar og held­ur á 63,5% hluta­fjár í fyr­ir­tæk­inu. Gera má ráð fyr­ir því að sá hlut­ur sé nú met­inn á 12 til 16,5 millj­arða króna, að því er segir í Morgunblaðinu í dag.