Stóraukin umsvif greiðslukortafyrirtækisins Borgunar á erlendum markaði undanfarin ár má fyrst og fremst rekja til vafasamra og áhættusamra viðskipta sem önnur kortafyrirtæki vilja ekki sinna.
Þetta kemur fram á mbl.is í dag, en þar segir að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi kynnt áform um útrás á þennan markað fyrir eigendum sínum. Landsbankanum, sem var einn eiganda á þeim tíma, hafi ekki hugnast þessi aukna áhætta og áherslubreyting.
Í fréttinni segir að meðal þess sem flokkist sem áhættumikil viðskipti fyrir kortafyrirtæki sé færsluhirðing fyrir klámviðskipti og fjárhættuspil. Slík áhættusöm viðskipti hafi aukið veltu Borgunar mikið síðustu ár.
Færsluhirðing á netinu hefur vaxið mikið undanfarin ár með fjölgun notenda á netinu, að því er ennfremur kemur fram á mbl.is, en vefurinn bendir á að samhliða aukinni verslun í gegnum netið hafi viðskipti sem flokkist sem áhættusöm einnig aukist mikið.
Fyrir færsluhirða séu viðskipti flokkuð í áhættusöm viðskipti og þau sem teljist nokkuð örugg. Meðal nokkuð öruggra viðskipta sé hægt að nefna venjulegan verslunarrekstur. Áhættusömu viðskiptin flokkist svo upp í nokkuð áhættusöm viðskipti og mjög áhættusöm viðskipti.