Borgun borgar sig

Í nýlegri fyrirsögn í Kjarnanum stendur: \"Umfangsmikil eignasala ríkisins í fullum gangi.\" Þar segir: \"Félag íslenska rík­is­ins, Lind­ar­hvoll ehf., hefur á und­an­förn­um vikum selt 6,38 pró­sent hlut í Reitum fyrir 3,9 millj­arða og 13,93 pró­sent hlut í Sjóvá fyrir 2,8 millj­arða. Kaup­endur voru fjár­festar á mark­að­i, líf­eyr­is­sjóð­ir, bankar og trygg­ing­ar­fé­lög þar á með­al. Lands­bank­inn ann­að­ist ­söl­una sem fór fram í opnu sölu­ferli á mark­aði.\" Greint er nokkuð nánar frá þessum sölumálum, þar á meðal að verðmæti eignanna sem verið er að selja hlaupi \" ... á tugum milljarða króna.\" Eignirnar eru margar, sumar taldar upp í greininni. En - bíðum við! Greinin er býsna þunn að öðru leyti, hvað veldur? Ekki er við blaðamenn Kjarnans að sakast, greinilega eru þeir að reyna að vinna vinnuna sína, en geta það ekki vegna þess að upplýsingarnar eru lokaðar inni í Lindarhvoli (sem er einkahlutafélag í eigu ríkisins og þar með undir stjórn fjármálaráðherra). Lindarhvoll upplýsir það sem félagið neyðist til samkvæmt lögum en ekki meira.

Hér má lesa í heild greinina í Kjarnanum:

http://kjarninn.is/skyring/2016-10-03-umfangsmikil-eignasala-rikisins-i-fullum-gangi/

Þakka ber elju þessara blaðamanna að fylgjast með þessum málum og gera sitt bsta til að upplýsa almenning á Íslandi um hvað verið sé að bralla með eigur okkar allra.

Óþægileg tilfining lætur á sér kræla við lestur þessarar Kjarnagreinar, ósjálfrátt rifjast upp hið óþægilega Borgunarmál þar sem nánustu ættingjar fjármálaráðherrans, Bjarna Benediktssonar, fengu í skjóli myrkurs að kaupa gríðarlega verðmæta eign á undirverði út úr ríkisbankanum Landsbanka Íslands, sem alveg óvart lýtur yfirstjórn sama fjármálaráðherrans.

Þegar raðað er saman upplýsingum sem birtast opinberlega í fjölmiðlum, nánast dag hvern, en virðast þó ekki hafa mikil áhrif, fer smám saman að birtast mynd sem engan langar að sjá. Hér skulu nefnd nokkur dæmi, tengd Borgun.

Kvennablaðið segir 28. nóvember 2014: \"Fjölskylda fjármálaráðherra fær forgang að kaupum á ríkiseignum.\" Svo segir þar: \"Það sætir tíðindum og krefst rannsóknar að fjölskylda fjármálaráðherra og þar með bankamálaráðherra skuli hafa fengið forgang að kaupum á hlut Landsbankans, nánar tiltekið 31,2 prósenta hlut í Borgun en Kjarninn greindi frá sölunni í gær.

Í frétt Kjarnans kom einnig fram að ekkert formlegt söluferli fór fram áður en félagið var selt. Það er sérkennilegt svo ekki sé meira sagt að fjölskylda fjármálaráðherra hafi greiðan aðgang að ríkiseignum en hlutur Landsbankans í Borgun er í raun og veru sönn  ríkiseign.\" Það var föðurbróðir Bjarna, Einar Sveinsson, sem þarna eignaðist um fimmtungs hlut í Borgun. Grein Kvennablaðsins:

http://kvennabladid.is/2014/11/28/fjolskylda-fjarmalaradherra-faer-forgang-ad-kaupum-a-rikiseignum/

Þetta var fyrir tveimur árum. Fjótlega komu fram \"skýringar\" Landsbankans að ekki hafi verið vitað að í Borgun væru framtíðarverðmæti, sem hvergi voru skráð að sagt var. Borgun skyldi fá miklar greiðslur við sameiningu evrópska og ameríska hluta kortafyrirtækjanna Visa, eða yfirtöku þess ameríska á því evrópska. Þetta vissu menn víst ekki í Landsbankanum(!). En - engar spurnir hafa borist af því að þetta hafi ekki verið vitað í Íslandsbanka.

Hvað gerðist svo? Jú, visir.is segir 6. febrúar síðastliðinn: \"Verðmæti Borgunar hefur nánast þrefaldast á rúmu ári eða frá þeim tíma sem Landsbankinn seldi fyrirtækið.\"

Fréttatíminn bætir svo um betur síðastliðinn föstudag, 13. október, og segir í fyrirsögn: \"Fyrirtæki föðurbróður Bjarna fær 86 milljónir úr Borgun.\" Svo er kjarnyrt samantekt: \"Arðgreiðslur Eignarhaldsfélagsins Borgunar til hluthafa síðastliðin tvö ár nema 395 milljónum króna. Félagið keypti hlutinn af ríkisbankanum Landsbankanum án auglýsingar. Hagnaður félagsins í fyrra nemur rúmlega 1/4 af kaupverðinu. Bankastjóri Landsbankans hefur viðurkennt að illa hafi verið staðið að sölunni.\" Lesa má greinina hér: http://www.frettatiminn.is/fodurbrodir-bjarna-faer-86-milljonir-ur-borgun/

 

Hér eru aðeins helstu kjarnaatriði málsins tíunduð, en þau segja í rauninni söguna alla. Niðursoðin í það sem öllu skiptir er hún þessi:

  • Landsbankinn seldi verðmæta eign almennings á undirverði.
  • Salan var framkvæmd í leynd.
  • Útvaldir fengu að kaupa.
  • Eignin þrefaldaðist í verði á einu ári.
  • Arðgreiðslur standa undir fjárfestingunni á 3-4 árum.
  • Landsbankinn, ríkisfyrirtæki,  er seljandinn.
  • Bankastjórinn segist ekkert hafa vitað.
  • Bjarni fjármálaráðherra segist ekkert hafa vitað.
  • Bjarni fjármálaráðherra fer með öll völd í Landsbankanum.
  • Bjarni fjármálaráðherra skipar stjórn bankans.
  • Bankastjórinn veit að hann á allt undir náð fjármálaráðherrans.

 

[email protected]