Borgun: bankinn sendir gögn í dag

Landsbankinn sendir í dag nefndarsviði Alþingis greinargerð um sölu bankans á Borgun, en bankinn seldi sem kunnugt er 31% hlut sinn í í Borgun fyrir 2,2 milljarða til stjórnenda og hóps fjárfesta.

Síðar hefur komið í ljós að verðmæti hlutarins var mun meira en salan gaf til kynna, en stjórnendur bankans skýla sér á bak við að þar hafi verið um ókunn verðmæti að ræða á þeim tíma. Gagnrýnin að bankanum beinist þó ekki aðeins að verðmatinu heldur og ekki síður að hafa selt hlutinn án útboðs og þar með með ógagnsæjum hætti.

Athygli vakti á Alþingi í gær að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar voru sammála um að hér væri um augljóst klúður að ræða, þeir kváðust báðir vera þeirra skoðunar að bankinn, í þessu tilviki að meginhluta í eigu ríkisins, ætti að tryggja með verklagi sínu að ríkið fengi sem mest fyrir þær eignir sem ákveðið væri að selja hverju sinni.

Forkólfar Fjármálaeftirlitsins mæta á fund fjárlaganefndar um málið á morgun, en eftirlitið óskaði eftir gögnum frá Landsbankanum í árslok 2014 vegna sölunnar á Borgun. Eftirlitið mun hafa fengið umbeðin gögn og eftir því sem fram kemur í Fréttablaðinu í morgun hefur það ekki sóst eftir frekari upplýsingum frá bankanum vegna sölunnar. Þar segir og að sérstakur saksóknari hafi ekki haft afskipti af málinu.