Borguðum þrjá milljarða með ferðaþjónustunni

Oddbný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, talaði meðal annars um ferðaþjónustuna í ræðu sinni í gær.

„Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein sem vaxið hefur mest og þar eru tækifæri. Flestir virðast sammála um að ferðamenn ættu að greiða gjöld sem staðið gætu undir viðhaldi vega og auknu álagi á löggæslu og heilsugæslu, vegna þess hve þeir eru orðnir margir hér á landi. Ég hef talað fyrir því, að áður en farið verður að setja gjöld á hitt og þetta og flækja innheimtuna, þá eigi að nýta það kerfi sem nú þegar er til staðar,“ sagði Oddný.

Og ekki bara að við höfum ekki innheimt sérstök gjöld vegna ferðaþjónustunnar:

„Á meðan að við þrösum um mismunandi gjaldtökur gefum við ferðamönnum afslátt af virðisaukaskatti af gistingu og afþreyingu. Þar til á síðasta ári, greiddum við með gistingu ferðamanna á hótelum landsins, það voru tæpir þrír milljarða króna samtals á sex ára tímabili. Á sama tíma var dregið úr framlögum til viðhalds vega, til lögreglunnar og til heilsugæslunnar. Og samdrátturinn heldur áfram.“