Borgin: viðreisn sögð í oddastöðu

Þegar rúm­ar sex vik­ur eru í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­ar eru lín­ur aðeins farn­ar að skýr­ast í borg­inni. Sam­kvæmt könn­un­um eru Sam­fylk­ing­in og Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn með mesta fylgið en meiri­hlut­inn held­ur ekki velli.

Ei­rík­ur Berg­mann Ein­ars­son, stjórn­mála­fræðing­ur, ræddi mál­in í morg­unþætt­in­um Ísland vakn­ar á K100 í morg­un. Hann seg­ir að lík­ast til verði Viðreisn í lyk­il­stöðu þegar kem­ur að því að mynda meiri­hluta og eins og staðan er núna er flokk­ur­inn lík­legri til að vilja vinna með gamla meiri­hlut­an­um en Sjálf­stæðis­flokkn­um. „Það má skipta þessu í tvær blokk­ir. Nú­ver­andi meiri­hluti, með eða án Viðreisn­ar, og svo Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn. Viðreisn hef­ur í borg­ar­mál­um talað á svipuðum nót­um og meiri­hlut­inn. Kannski má skipta Bjartri framtíð út fyr­ir Viðreisn, sem er í al­gjörri odda­stöðu og ræður því hvort borg­ar­stjór­inn heit­ir Dag­ur B. Eggerts­son eða Eyþór Arn­alds,“ seg­ir Ei­rík­ur.

 Hann seg­ir að átök í Sjálf­stæðis­flokkn­um hafi leitt til upp­gjörs þar sem frjáls­lynda hluta flokks­ins var hafnað. Með slík­an lista verði erfitt að mynda stjórn með meiri­hluta­flokk­un­um og jafn­vel Viðreisn. Þetta upp­gjör í Sjálf­stæðis­flokkn­um hafi held­ur ekki haft góð áhrif á fylgi flokks­ins.

Ei­rík­ur seg­ir erfitt að meta áhrif minni flokka, til dæm­is Kvenna­fram­boðsins en fjölg­un borg­ar­full­trúa hef­ur skapað meira rými fyr­ir minni fram­boð. Þó sé vand­séð hvernig þau geta orðið fleiri en nú þegar eru fram kom­in. Það sem vanti helst í þessa kosn­inga­bar­áttu séu mál­efni og mest sé rif­ist um leiðakerfi strætó, svo vitnað sé til fréttar mbl.is af viðtalinu á K 100.