Rekstur Reykjavíkurborgar er ekki sjálfbær og segir Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í minnihluta borgarstjórnarr að rekstur borgarinnar sé infaldlega skelfilegur.
Fram kemur á forsíðu Morgunblaðsins í dag að viðvarandi halli aðalsjóðs Reykjavíkurborgar bendi til þess að skatt- og þjónustutekjur standi ekki undir rekstri málaflokka borgarinnar til lengri tíma, en þar er vitnað til greinargerðar með frumvarpi til fjárhagsáætlunar sem meirihlutinn kynnti á borgarstjórnarfundi í gærdag.
Halldór Halldórsson segir í blaðinu að aðhald skorti í rekstri borgarinnar. Hann segir vandann uppsafnaðan og meðal annars felast í taumlausri fjölgun starfa innan borgarkerfisins, en hann bendir á að einir 14 upplýsingafulltrúar starfi nú innan þess: \"Þarf fjórtán upplýsingafulltrúa? Ég held ekki,\" segir oddvitinn.
Dagur B. Eggertsson segir í sömu frétt að lækka þurfi launakostnað innan borgarinnar og það verði gert, en þó með sem fæstum uppsögnum.