Leik- og grunnskólar munu ekki þurfa að mæta halla vegna 2015 á árinu 2016. Staða einstakra starfstaða verður metin í ljósi ábendinga stjórnenda um óviðráðanleg ytri skilyrði. Þetta kemur fram í nýrri aðgerðaráætlun borgaryfirvalda sem samþykkt var í borgarráði í morgun.
Nánar um nokkur atriði í aðgerðaáætluninni:
Skólarnir fái aukið fjármagn vegna langtímaveikinda starfsmanna, sérkennslu og skólaaksturs. Um 680 milljónir króna vegna haustsins í ár.
Hækkun fæðisgjalds verður um hundrað krónur á dag og tekur gildi nú strax í haust. Þeir fjármunir munu fara óskiptir í hráefnisinnkaup til að bæta gæði máltíða. Skólar í Reykjavík munu eftir breytinguna búa við sambærileg framlög til hráefniskaupa og þau sveitarfélög sem leggja mest í matarinnkaup fyrir skólana.
Veruleg hækkun verður til kaupa á námsgögnum í leikskólum, eða úr 1.800 krónum á barn í 3000 krónur.
Meira fé eða tæplega 25 milljónum króna verður varið í haust til faglegs starfs í leikskólum. Sömuleiðis verður gefið í varðandi grunnskólana og aukalega veittar 60 milljónir til faglegrar stjórnunar, strax í haust.
Ekki fylgir þó samantekt á því hve útgjöld borgarsjóðs verða með þessu í heild sinni.